„Grafalvarlegt ástand í íslenskum landbúnaði“
Í gær fundaði stjórn Bændasamtaka Íslands vegna þess ástands sem upp er komið í íslenskum landbúnaði, en samkvæmt fréttatilkynningu er það grafalvarlegt. Verkfall dýralækna hjá Matvælastofnun geti hreinlega knúið sum búanna í gjaldþrot og valdið mikilli röskun á kjötframleiðslu í landinu.
Í fréttatilkynningunni segir að á meðan verkfall dýralækna hjá Matvælastofnun stendur yfir getur engin heilbrigðisskoðun farið fram og því er staðan alvarlegust í alifugla- og svínarækt. Vegna hraðrar versnunar í lausfjárstöðu búanna geti verkfallið knúið sum þeirra í gjaldþrot, þar sem þau koma ekki kjöti á markað.
Velferð dýranna sé verulega ógnað þar sem að þéttleiki í eldihúsum er kominn yfir leyfileg mörk. Í tilkynningunni kemur fram að Bændasamtökin hafi sent bréf til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að þessu tilefni og krafist aðgerða strax vegna þessa neyðarástands. Samtökin leggja þunga áherslu á að ráðherra geri allt sem í valdi hans stendur til að stuðla að lausn deilunnar.
Einnig fer fulltrúi Bændasamtakanna í fagráði fram á að ráðið verði kallað saman nú þegar til að ræða um stöðuna sem, eins og áður hefur komið fram, er grafalvarleg.