Greitt eftir rúmmála úrgangs
Þann 1. febrúar tók gildi gjaldskrá vegna móttöku á úrgangi í Endurvinnslustöð Blönduósbæjar. Allur rekstrarúrgangur frá rekstraraðilum er gjaldskyldur nema hann beri
úrvinnslugjöld og sé skilað flokkuðum í þar til gerða gáma.Lágmarksgjald er 1000 krónur fyrir 0,25 m³ og er greitt eftir rúmmáli úrgangs.
Heimili eru almennt gjaldfrjáls fyrir almennan úrgang enda greiða þau sorpeyðingargjald við álagningu fasteignagjalda. Þó er úrgangur vegna framkvæmda gjaldskyldur en allur endurvinnanlegur úrgangur sem flokkaður er í til
þess gerða gáma er gjaldfrír. Móttaka raftækja, hjólbarða og spillefna er einnig gjaldfrí. Þegar komið er með úrgang í Endurvinnslustöðina er mikilvægt að ræða við starfsmann sem metur hvort um gjaldskyldan úrgang er að ræða og leiðbeinir með flokkun á endurvinnanlegum úrgangi. Hægt er að greiða með korti í Endurvinnslustöðinni en fyrirtæki geta sótt um að vera í reikningsviðskiptum. Gjaldskráin er á heimasíðu Blönduósbæjar, www.blonduos.is undir „gámasvæði/sorphirða“