Grímuball á Blönduósi
Árlegt grímuball verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi í dag öskudag kl. 19. Börn, foreldrar og aðrir bæjarbúar eru hvattir til að koma grímuklæddir.
Dagskrá:
19:00 Húsið opnar
19:30 Marsering og dans
Slá köttinn úr tunnunni
Dans
20:45 Dagskrá lýkur
Aðgangseyrir er 400 kr. fyrir grímuklædda en 800 kr. fyrir aðra og frítt er fyrir börn yngri en 6 ára. Þess má geta að ekki er hægt að greiða með kortum.
Heimild: Húni.is