Grunnskólabörn að komast í jólafrí

Eins og nærri má geta eru grunnskólabörn í Skagafirði og Húnavatnssýslum óðum að komast í jólaskapið, enda styttist í langþráð jólafrí, eins og sagt er frá á heimasíðu sveitarfélagsins Skagafjarðar. Víða er síðasti kennsludagur fyrir jóla í dag og litlu jól á morgun.

Myndin var tekin í Varmahlíðarskóla í fyrradag þegar börnin þar hituðu sér te í útikennslustofunni sinni. Sami siður er við lýði í Sólgarðaskóla í Fljótum, og ef til vill víðar, að hita kakó úti skógi á aðventunni.

Fleiri fréttir