Grunnskóli Bolungarvíkur bar sigur úr býtum í landskeppni Grænna Frumkvöðla Framtíðar 2022

Í lok maí fór fram Landskeppni MAKEathons, nýsköpunarkeppni Grænna Frumkvöðla Framtíðar. Þar kepptu skólarnir þrír, Nesskóli, Grunnskóli Bolungarvíkur og Árskóli, til úrslita. Hver skóli sendi inn myndband þar sem þeir útskýrðu sínar lausnir á umhverfisáskorunum í sinni heimabyggð.

Keppnin var hnífjöfn en á endanum var það Grunnskóli Bolungarvíkur sem bar sigur úr býtum. Þeim innan handar voru Hildur Ágústsdóttir kennari og Gunnar Ólafsson frá Djúpinu frumkvöðlasetri.

Grunnskóli Bolungarvíkur glímdi við áskorunina:
„Hvernig er hægt að nýta úrgang frá fiskeldi betur “
og lausnin sem vann bar yfirskriftina: "Að nýta úrgang frá fiskeldi á sjálfbæran hátt"

Hér er fyrir neðan má lesa endurgjöfina sem sigurliðið fékk frá dómnefndinni:
“Þið eruð hugvitssöm og lausnamiðuð. Þið komuð auga á umhverfisvandamál sem skapast
vegna fiskeldis í sjó og leituðuð lausna. Það var frábært að fá að sjá skítinn sem safnast hefur
fyrir, en það sjónarhorn fær almenningur yfirleitt ekki. Ykkar verkefni gengur út á að breyta
úrgangi og botnfalli í auðlind sem nýtist, og gæti því komið bæði náttúru og
sjávarútvegsfyrirtækjum að gagni. Við hvetjum ykkur til að vinna lausnina áfram og hafa í
huga mikilvægi líffræðilegs fjölbreytileika í vistkerfum í sjónum, en eldi í sjó getur skaðað
hann sé ekki að gætt.“

Í dómnefnd sátu:
• Lenya Rún Taha Karim varaþingmaður Pírata og lögfræðinemi
• Margrét Hugadóttir vefstjóri og verkefnastjóri hjá Landvernd
• Þóra Valsdóttir verkefnastjóri hjá Matís

Fyrir frekari upplýsingar er bent á að hafa samband við verkefnastjóra Grænna frumkvöðla
framtíðar: Justine@matis.is. Skólar sem vilja taka þátt eru sérstaklega hvattir til að hafa
samband.
Hér er hægt að fylgjast með gangi verkefnisins:
- Heimasíðu verkefnisins: https://graenirfrumkvodlar.com/
- Instagramsíðu verkefnisins: https://www.instagram.com/gff_matis/
- #Graenirfrumkvodlar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir