Guðbjartur Hannesson leiðir lista Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi
Nú liggja úrslit fyrir í flokksvali Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Fléttulistaaðferð verður beitt til að tryggja jafnt hlutfall kynja samkvæmt reglum flokksvalsins. Hörður Ríkharðsson færist því upp um eitt sæti og Hlédís Sveinsdóttir niður um eitt sæti.
Á kjörskrá voru 1496 flokksfélagar, alls greiddu 701 atkvæði í póstkosningu sem gerir 46,9% kjörsókn.
- 1. Guðbjartur Hannesson með 533 atkvæði í 1. sæti
- 2. Ólína Þorvarðardóttir með 435 atkvæði í 1.-2. sæti
- 3. Hlédís Sveinsdóttir með 443 atkvæði í 1.-3.sæti
- 4. Hörður Ríkharðsson með 479 atkvæði í 1.-4. sæti
- 5. Benedikt Bjarnason með 379 atkvæði í 1.-4. sæti
Kosning er bindandi í fjögur efstu sætin.