Guðbjartur Hannesson leiðir lista Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi

Á kjördæmisþingi Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi í Borgarnesi í gær var samþykktur framboðslisti flokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Á listanum eru jafn margar konur og karlar.

Listann skipa:

1.         Guðbjartur Hannesson, ráðherra, Akranesi

2.         Ólína Þorvarðardóttir, alþingismaður,  Ísafjarðarbæ

3.         Hörður Ríkharðsson, kennari, Blönduósbæ

4.         Hlédís Sveinsdóttir, sjálfstætt starfandi,  Akranesi

5.         Garðar Svansson, fangavörður, Grundarfirði

6.         Inga Björk Bjarnadóttir, háskólanemi, Borgarbyggð

7.         Benedikt Bjarnason, starfsmaður Fiskistofu, Ísafjarðarbær

8.         Svanhildur Guðmundsdóttir, sviðstjóri, Sveitarfélaginu Skagafirði

9.         Ólafur Þór Jónsson, háskólanemi, Borgarbyggð

10.       Kristín Sigurrós Einarsdóttir, bókavörður, Strandabyggð

11.       Sigurður Þór Ágústsson, skólastjóri, Húnaþingi vestra

12.       Guðrún Eggertsdóttir, viðskiptafræðingur, Vesturbyggð

13.       Magnús Smári Snorrason, verslunarstjóri, Borgarbyggð

14.       Arna Lára Jónsdóttir, verkefnastjóri, Ísafjarðarbær

15.       Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, verkefnastjóri, Sveitarfélaginu Skagafirði

16.       Jóhann Ársælsson, fyrrv. alþingismaður, Akranesi

Fleiri fréttir