Guðjón Brjánsson velti Ólínu úr sessi
Guðjón Brjánsson frá Akranesi mun leiða lista Samfylkingar í Norðvestur kjördæmi en niðurrstaða forvals var kynnt í gærkvöldi. Einungis var kosið um tvö efstu sætin og tveir aðilar sem buðu sig fram í fyrsta sætið og einn í fyrsta til annað sætið.
Guðjón S. Brjánsson frá Akranesi og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir þingkona sóttust bæði eftir að leiða listann en Inga Björk Bjarnadóttir bauð sig fram í 1. - 2. sæti. Eftir að úrslit urðu ljós gaf Ólína það út að hún tæki ekki þriðja sætið.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir þingkona hefur gefið það út að hún ætlar ekki að taka þriðja sætinu. „Frá upphafi lá fyrir að ég byði mig aðeins fram í fyrsta sætið. Í ljósi niðurstöðunnar mun ég því ekki taka sæti á þessum framboðslista. Ég lagði störf min og þingmannsferil undir. Flokksmenn völdu svona. Þar við situr og ég þakka fyrir mig,“ skrifar Ólína á Fésbókarsíðu sína.
Guðjón segir á sinni Fésbókarsíðu að niðurstaða forvalsins hafi verið ánægjuleg þar sem hann hafi fengið brautargengi til þess að takast á við krefjandi verkefni sem framundan eru. „Meðframbjoðendur mínir sem ég virði mikils fylgdu mér fast eftir og saman höfum við það eitt að markmiði að efla hugsjónir jafnaðarmanna og tala fyrir skýrum leiðum einum rómi. Ég þakka ykkur öllum sem sýnt hafa mér mikið traust og einset mér í samvinnu við ykkur öll, með ykkur - að vinna að góðum málefnum, vinna að góðum árangri í komandi Alþingiskosningum. Við skulum sýna áræði til breytinga.“