Guðmann náði 4. sæti á landsmóti
Keppni í SKEET á landsmóti UMFÍ er nú lokið. Guðmann Jónasson frá skotfélaginu Markviss á Blönduósi var efstur að stigum að fimm hringjum loknum en laut í lægra haldi fyrir Stefáni Örlygssyni eftir bráðabana um bronsið og hafnaði því í 4. sæti.
Markvissfélaginn Brynjar Guðmundsson hafnaði í 8. sæti á 86 dúfum og Snjólaug M Jónsdóttir á 61 dúfu.
Þessari keppnishelgi er ekki lokið hjá þeim Guðmanni Jónassyni og Brynjari Guðmundssyni þar sem þeir munu mæta til leiks á morgun á SIH open sem er alþjóðlegt mót haldið að Iðavöllum í Hafnarfirði.