Guðmann sigraði í 1. flokki á Landsmóti í leirdúfuskotfimi um helgina

Nú um síðustu helgi fór fram Landsmót í leirdúfuskotfimi á Húsavík. Var þetta fyrsta landsmótið sem haldið hefur verið af Skotfélagi Húsavíkur en mikil gróska er í skotgreinum þar um slóðir. Skotfélagið Markviss á Blönduósi átti þar einn keppanda í 1. flokki.

Guðmann Jónasson keppti fyrir hönd Markvissmanna og náði hann ágætis árangri á mótinu en vann hann 1. flokkinn og hafnaði í 3. sæti á mótinu eftir sigur í bráðabana gegn Sigdóri Jósefssyni frá Húsavík.

Ekki var Guðmann eini Húnvetningurinn meðal keppanda, því Guðmundur Pálsson (Svavarssonar) sem keppir fyrir SR, vann 3. flokkinn og Guðlaugur Bragi Magnússon(frá Sunnuhlíð) Skotfélagi Akureyrar hafnaði í 4. sæti í 1. flokki.

Næsta mót verður Alþjóðlegt mót í Hafnarfirði í byrjun júlí og mun Skotf. Markviss að öllu óbreyttu eiga þar 2 keppendur.

Skotfélagið Markviss eru með æfingar á miðvikudagskvöldum og eru allir hvattir sem áhuga hafa, til að kíkja við og kynnast þessari skemmtilegu íþrótt af eigin raun eða bara koma í kaffi og spjall.

/huni.is

Fleiri fréttir