Guðrún Sif tekur til starfa
Nýr blaðamaður, Guðrún Sif Gísladóttir, tekur til starfa hjá Feyki í vikunni og mun vera hjá blaðinu í sumar.
Guðrún er fædd og uppalin á Sauðárkrók, dóttir Bjarnfríðar Hjartardóttur og Gísla Rúnars Konráðssonar. Guðrún útskrifaðist frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra vorið 2009 og hóf nám í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri síðastliðið haust. Guðrún fór suður eftir framhaldsskóla en flutti aftur á Krókinn um jólin 2010, hún á einn son, Ísar Smára Bergmann.
,,Það er mjög spennandi tækifæri að fá að vinna við það sem ég er að læra og ég hlakka mjög til sumarsins. Hef alltaf haft mikinn áhuga á blaðamennsku og verður þetta góð þjálfun í greinarskrifum og öllu sem fylgir því að starfa sem blaðamaður,” segir Guðrún.
Netfang Guðrúnar er gudrun@feykir.is og símanúmerið 772 9702.