Gullæði meðal smábátasjómanna
Gullæði virðist hafa gripið um sig meðal smábátasjómanna, sem felst í því að fara á makrílveiðar með handfærum í sumar.
Vísir.is segir frá því að um það bil 240 umsóknir hafi nú þegar borist um leyfi til veiðanna, en því má líkja við sprengingu, því aðeins 17 bátar stunduðu þessar veiðar í fyrrasumar. Þeir lönduðu daglega fersku hráefni til manneldisvinnslu og fengu yfirleitt mun betra verð fyrir aflann á fiskmörkuðum en skip, sem veiða markílinn með stórtækari veiðarfærum og eru lengur í veiðiferðunum.
Makrílveiðarnar mega hefjast fyrsta júlí.