Hæg breytileg átt og léttskýjað í dag
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er hæg breytileg átt og yfirleitt léttskýjað. Hiti 1 til 6 stig að deginum. Vegir að miklu leyti auðir en vegna aurbleytu og/eða hættu á slitlagsskemmdum þarf að takmarka ásþunga víða á landinu.
Samkvæmt vef Vegagerðarinnar er 10 tonna ásþungi á þjóðvegi 75 Sauðárkróksbraut frá Sauðárkróki að Siglufjarðarvegi og á þjóðvegi 76 Siglufjarðarvegi. 10 tonna ásþungi á þjóðvegi 74 Skagastrandarvegi og á þjóðvegi 744 Þverárfjallsvegi. Næstu daga má einnig búast við að ásþungi verði takmarkaður víðar.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á sunnudag:
Austan og suðaustan 3-8 m/s og víða bjartviðri, en 8-13 og súld syðst. Hiti 0 til 6 stig, mildast syðst.
Á mánudag og þriðjudag:
Hæg austanátt og bjartviðri N-til, en 5-10 m/s og væta með köflum S-lands. Hiti 3 til 10 stig að deginum.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Sunnan- og suðaustanátt með vætu víða um land, en þurrt að kalla fyrir norðan. Áfram milt í veðri.