Hægviðri og greiðfærir vegir
Eftir ófærð á sunnudagskvöld og í gærmorgun eru vegir á Norðurlandi vestra nú að verða auðir. Þó eru hálkublettir á Þverárfjalli og á Vatnsskarði og hálkublettir og éljagangur á Öxnadalsheiði. Samkvæmt vef Vegagerðarinnar er hægviðri á helstu vegum, frá logni upp í 3 m/s.
Veðurstofan spáir norðaustan 8-13 m/s og dálitlum skúrum eða slydduéljum. Hægari síðdegis. Norðaustan 5-8 og skýjað með köflum í nótt og á morgun. Hiti 2 til 6 stig, en við frostmark í nótt.
Í yfirliti veðurstofunnar um tíðarfar í apríl segir að snjólétt hafi verið á landinu sunnan- og vestanverðu en töluverður snjór norðaustanlands. Á Akureyri voru alhvítu dagarnir aðeins 3 í mánuðinum og er það 8 dögum undir meðallagi. Hins vegar var þar aðeins einn alauður dagur og meðalsnjólag því 53 prósent. Svo hátt hefur meðalsnjólagið ekki verið í apríl á Akureyri síðan árið 2001.