Hækkað verð fyrir sláturfé

Sláturhús Kaupfélags Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga og kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki gáfu út nýja verðskrá í byrjun vikunnar fyrir sauðfjárinnlegg í sláturtíð 2013.

Áætlað er að slátra þrjá daga í ágúst í sláturhúsinu á Hvammstanga og fram kemur á vef KS að stefnt sé að því að ná inn í ágústslátrun 4-5 þúsund lömbum, en afurðirnar verða sendar ferskar á markað í Bandaríkjunum.

Á vef Bændablaðsins segir Ágúst Andrésson, forstöðumaður kjötafurðarstöðvar KS, að ný verðskrá geri ráð fyrir um 10% hækkun að meðaltali frá verðskránni í fyrra. „Við teljum okkar hafa svigrúm fyrir þessari hækkun og viljum með henni sýna sauðfjárbændum stuðning. Við höfum ekki áður verið fyrstir til að birta verðskrá en gerum það núna, enda höfum við fundið fyrir því að það er nauðsynlegt að vera tímanlega með verðskránna og viðmiðunarverðið sem Landssamband sauðfjárbænda hefur jafnan birt hefur ekki alltaf verið að virka sem slíkt,“ segir Ágúst á vef Bændablaðsins.

Fleiri fréttir