Hækkunum hafnað af Blönduósbæ

Frá Blönduósi. Mynd: KSE
Frá Blönduósi. Mynd: KSE

Byggðaráð Blönduósbæjar fjallaði fundi í síðustu viku um hækkun launa kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn, nefndum og ráðum, sem er tilkomin vegna ákvörðunar kjararáðs þann 29. október síðastliðinn um hækkun þingfararkaups um 44%.

Byggðaráð lagði til við sveitarstjórn Blönduósbæjar að hafna hækkunum kjararáðs um hækkun launa alþingismanna, sem hefur valdið ólgu í þjóðfélaginu. Ákvörðunin hefur bein áhrif á launakjör margra sveitarstjórnarmanna en laun þeirra taka víða mið af þingfararkaupi. Áður hafði sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar hafnað umræddri hækkun.

 

Fleiri fréttir