Hættur í Samstöðu

Sigurður Þ. Ragnarsson hefur ákveðið að segja skilið við SAMSTÖÐU flokk lýðræðis og velferðar. Stjórn SAMSTÖÐU þakkar Sigurði fyrir mikilvægt framlag hans við stofnun flokksins og óskar honum velfarnaðar í störfum sínum.

„Stjórnin tjáir sig ekki frekar um málið en mun halda áfram að beina kröftum sínum að undirbúningi þess mikla uppbyggingar- og málefnastarfs sem framundan er í SAMSTÖÐU,“ segir í fréttatilkynningu frá Stjórn SAMSTÖÐU flokks lýðræðis og velferðar.

 

Fleiri fréttir