Hagnaður af rekstri Húnavatnshrepps
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
12.04.2015
kl. 11.09
Fyrri umræða um ársreikning Húnavatnshrepps vegna ársins 2014 fór fram á fundi sveitarstjórnar sl. miðvikudag. Í fundargerð segir að tekjur A og B hluta námu samtals 354,7 millj.kr. og að gjöld A og B hluta námu 335,3 millj.kr.
Hagnaður af rekstri sveitarfélagsins nam um 19,4 millj.kr. fyrir fjármagnsliði en að teknu tilliti til þeirra nam hagnaðurinn 18,8 millj.kr.
Þá segir að handbært fé frá rekstri á árinu 2014 hafi numið 28,4 millj.kr. og að skuldahlutfall sveitarfélagsins hafi verið 33% um síðustu áramót.
Sveitarstjórn samþykkti samhljóða að vísa ársreikningnum til seinni umræðu.