Hagsmunir ferðaþjónustunnar og vetrarherferð Ísland - allt árið

Íslandsstofa og Markaðsstofa Norðurlands bjóða enn til samtals um hagsmuni ferðaþjónustunnar og vetrarherferðina Ísland - allt árið. Fundaröð með þessari yfirskrift var áður á dagskrá í september á Norðurlandi en var frestað ýmist vegna dræmrar skráningar eða veðurs.

Ferðaþjónustuaðilar á Norðurlandi vestra eru hvattir til þess að fjölmenna á þennan fund á Akureyri mánudaginn 30. september næstkomandi klukkan 13:30 - 15:00 í Menningarhúsinu Hofi.

Á fundinum ætlar Íslandsstofa að kynna áherslur í markaðssetningu erlendis og markaðsverkefnið Ísland - allt árið á komandi vetri og Samtök ferðaþjónustunnar munu fara yfir helstu hagsmunamál greinarinnar.

Fundurinn er öllum opinn og þátttaka er án endurgjalds en áhugasamir eru beðnir að skrá sig með því að senda Markaðsstofunni póst: maria@nordurland.is.

Fleiri fréttir