Hagur verk leigir Húnaver næstu tíu árin
Á fundi sveitarstjórnar Húnavatnshrepps á síðastliðinn miðvikudag var samþykkt að Hagur verk ehf. tæki félagsheimilið Húnaver á leigu til næstu tíu ára. Var leigusamningur samþykktur samhljóða af sveitarstjórn.
Samningurinn nær yfir allt húsnæðið og land umhverfis það. Hafa eigendur Hags verks ehf.óskað eftir góðu samstarfi við eigendur Húnavers og vilja jafnframt kappkosta að tryggja aðgang eigenda Húnavers að húsinu. „Það væri hagur allra að slíkt samstarf gengi sem best fyrir sig,“ eins og segir í fundargerð.
Við afgreiðslu málsins lögðu fulltrúar E-lista fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar E-lista samþykkja leigusamning við Hag verk ehf. um leigu á fasteigninni Húnaveri, félagsheimili, enda er það hagur sveitarfélagsins að hafa tekjur af fasteignum þess ásamt því að losna við rekstrarkostnað og launakostnað. Einnig er ekki æskilegt að sveitarfélagið standi í rekstri ferðaþjónustu í samkeppni við íbúa sína. Jafnframt teljum við eðlilegt að aðildarfélög hafi áfram gott aðgengi að Húnaveri fyrir sína starfsemi.
Loks var greindi sveitarstjóri frá því frá því að eigendafundur yrði haldinn með stjórnum Kvenfélags Bólstaðarhlíðarhrepps, Ungmennafélags Bólstaðarhlíðarhrepps og Búnaðarfélags Bólstaðarhlíðarhrepps. Yrðu þær boðaðar á sameiniginlegan fund á morgun, þriðjudag, ásamt oddvita og sveitarstjóra sem mæta á fundinn sem fulltrúar Húnavatnshrepps.
