Hagyrðingakvöld síðasta vetrardag
Hinir landsþekktu hagyrðingar þeir, Árni Jóns, Páll Þórðar, Einar Kolbeins og síðast en ekki síst nýliðinn Þórður Pálsson takast á með kviðlingum og kvikindisskap í Ósbæ, Þverbraut 1 Blönduósi, miðvikudagskvöldið. 20. apríl nk. kl. 20:30 undir styrkri stjórn Gísla Geirssonar.
Hermann og Elín sjá um harmonikuspil og dansmennt að kveðskap loknum.
Miðaverð kr. 2.000.
Stjórn H.U.H.