Hálendisvakt Húna lokið

Björgunarsveitin Húnar á Hvammstanga hefur lokið hálendisvakt sinni en sveitin var stödd á svæðinu norðan Vatnajökuls. „Áttum frekar náðuga viku, gafst allavega færi á að kíkja í bað við Holuhraunið (heitasti potturinn á klakanum í dag),“ segir á Facebook-síðu Húna.

Þetta var tíunda árið í röð sem Húnar stóðu Hálendisvaktina en með þeim voru björgunarsveitarmenn frá Strönd á Skagaströnd og og tveir Walesbúar frá systursamtökum Landsbjargar, þeir Chris Lloyd og Paul Smith.

„Það var skemmtileg tilbreyting að hafa þá félaga með þar sem þeir bæði miðluðu af reynslu sinni og horfðu á hlutina í öðru ljósi en við gerum jafnan. Þannig að það var mikið rætt og skipst á skoðunum og farið yfir hvernig málin sem koma upp í starfi björgunarsveitanna eru leyst,“ segir loks á síðunni.

Fleiri fréttir