Hálka á flestum vegum
Á Norðurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum vegum, samkvæmt vef Vegagerðarinnar, en þó er flughált í Langadal. Þoka er á Vatnsskarði og á vegum í nágrenni Blönduóss.
Í dag verður hægviðri og léttskýjað, en austan 5-10 m/s seinni partinn. Í spá Veðurstofu Íslands kemur fram að í kvöld og í nótt á að hvessa, austan 10-15 og rigning eða slydda morgun. Hiti 0 til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:
Suðaustan og austan 8-13 m/s og rigning eða slydda, en snjókoma inn til landsins. Vestlægari og léttir til S- og V-til síðdegis. Hiti kringum frostmark.
Á miðvikudag:
Gengur í suðaustan 10-15 m/s með rigningu eða slyddu SV-til síðdegis og hiti 1 til 6 stig. Mun hægara og úrkomulaust N- og A-lands og hiti kringum frostmark.
Á fimmtudag og föstudag:
Suðlæg átt og rigning eða slydda S- og V-lands og snjókoma inn til landsins, en annars úrkomulítið. Hiti 1 til 6 stig, en vægt frost inn til landsins.
Á laugardag og sunnudag:
útlit fyrir ákveðna vestlæga átt snjókomu eða éljagangi, einkum V-til. Kólnandi veður.