Hálka á flestum vegum
Hálka eða hálkublettir eru á flestum vegum á Norðurlandi vestra. Á Ströndum og Norðurlandi vestra er hæg austanátt og léttir heldur til. Austan 8-13 á annesjum í kvöld. Frost 0 til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á fimmtudag:
Suðaustan 8-13 m/s og rigning eða slydda á SA- og A-landi, annars úrkomulítið. Snýst í vestan 8-13 með slyddu eða snjókomu SV- og V-lands. Víða vægt frost, en hiti 0 til 6 stig SA- og A-lands.
Á föstudag:
Vaxandi austan- og norðaustanátt, 10-18 m/s síðdegis, hvassast SA-til. Snjókoma og síðar slydda eða rigning á A-verðu landinu, en yfirleitt þurrt V-til. Frost 0 til 7 stig, en hiti 1 til 6 stig eystra síðdegis.
Á laugardag:
Allhvöss eða hvöss norðaustanátt. Úrkomulítið á SV- og V-landi, annars slydda eða rigning, einkum A-til, en snjókoma til landsins. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig.
Á sunnudag:
Norðaustanátt og él, en þurrt og bjart SV-til. Heldur kólnandi.
Á mánudag:
Austlæg átt og úrkomulítið, frost 0 til 5 stig.
Á þriðjudag:
Norðaustanátt með slyddu eða snjókomu N- og A-til, en rigningu við ströndina. Líklega þurrt SV-lands.