Hálka á Þverárfjalli og á Vatnsskarði

Á Norðurlandi eru vegir mikið til auðir vestan Blönduóss en snjóþekja er í Langadal og hálka á Þverárfjalli og á Vatnsskarði. Á Ströndum og Norðurlandi vestra er suðaustan 10-15 og dálítil rigning af og til. Hiti 1 til 7 stig. Suðvestan 5-13 og slydda í fyrramálið en dálítil él á morgun og kólnar.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:

Sunnan hvassviðri eða stormur og talsverð rigning sunnan- og vestanlands en úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hiti víða 5 til 10 stig.

Á fimmtudag:

Suðvestanátt og él um landið vestanvert. Hægviðri austantil og rigning með köflum suðaustanlands, en slydda eða snjókoma norðaustantil. Hiti 0 til 5 stig.

Á föstudag, laugardag og sunnudag:

Hæg suðlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri. Hiti um eða yfir frostmarki að deginum, en talsvert næturfrost, einkum til landsins.

Fleiri fréttir