Hálka eða hálkublettir á köflum á NLV

Hálka eða hálkublettir eru á köflum á Norðurlandi einkum á fjallvegum. Snjóþekja er Öxnadalsheiði. Suðvestan 5-13 m/s og dálítil él er á Ströndum og Norðurlandi vestra. Frost 0 til 5 stig, en hiti kringum frostmark við sjóinn.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á föstudag:

Suðvestan 5-13 m/s, en 13-18 vestast um kvöldið. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt á N- og A-landi, en él S- og V-lands. Frost víða 0 til 7 stig, kaldast til landsins.

Á laugardag:

Gengur í hvassa austan- og norðaustanátt og fer að snjóa, fyrst S-lands. Rigning eða slydda S- og A-lands seinnipartinn, annars snjókoma og vægt frost.

Á sunnudag:

Norðvestan- og vestanátt. Víða slydda eða snjókoma. Hiti 0 til 5 stig SA-til, annars um eða undir frostmarki.

Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:

Útlit fyrir umhleypingasamt veður og úrkomu víða um land.

Fleiri fréttir