Hálka eða hálkublettir á vegum

Hálka eða hálkublettir er á Norðurlandi vestra og enn varar Vegagerðin við flughálku á Þverárfjallsvegi. Hæg breytileg átt er í landshlutanum og lítilsháttar rigning af og til, en sums staðar slydda eða snjókoma undir kvöld. Suðvestan 3-10 m/s og slydda í fyrramálið en úrkomulítið síðdegis. Hiti 0 til 3 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á föstudag:
Suðaustanátt, víða 13-18 m/s. Snjókoma N-til á landinu í fyrstu, annars rigning eða slydda. Minnkandi sunnanátt síðdegis og úrkomulítið fyrir norðan. Hlýnandi, hiti 1 til 6 stig seinni partinn.

Á laugardag:
Sunnan 5-10 og þurrt N-lands, en gengur í suðvestan 13-18 með slyddu eða rigningu á S-verðu landinu. Hiti 0 til 5 stig syðra, annars um eða undir frostmarki. Suðvestan 8-15 um kvöldið, víða él og vægt frost.

Á sunnudag:
Hvöss austan- og norðaustanátt. Snjókoma og síðar slydda eða rigning, einkum SA-lands, en úrkomulítið NV-til. Hlýnandi í bili, hiti 1 til 5 stig síðdegis, en í kringum frostmark fyrir norðan.

Á mánudag og þriðjudag:
Austlæg átt, rigning eða slydda á SA- og A-landi á mánudag, annars úrkomulítið. Heldur kólnandi.

Fleiri fréttir