Hálka eða snjóþekja á flestum vegum

Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á flestum vegum á Norðurlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni og víða éljagangur. Vegfarendur sem fara um Þverárfjall eru enn beðnir að sýna aðgát. Þar er vegur mjög ósléttur og er hraði því tekinn niður í 70 km/klst. 

Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður norðaustan 3-10 m/s í dag og lítilsháttar él. Hægviðri á morgun og birtir til. Hiti um og undir frostmarki.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á fimmtudag:
Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s, en norðvestan 8-13 með A-ströndinni. Víða bjartviðri, en stöku él við N- og A-ströndina. Frost 0 til 7 stig, en sums staðar frostlaust S-lands að deginum.

Á föstudag:
Gengur í sunnan og suðaustan 13-20 m/s eftir hádegi með rigningu, en sums staðar slyddu í fyrstu. Hægari og þurrt á N- og A-landi fram á kvöld. Hlýnandi veður, hiti 3 til 8 stig um kvöldið.

Á laugardag:
Suðvestan 8-13 m/s og skúrir eða él, en bjart á NA- og A-landi. Hiti 0 til 6 stig, hlýjast NA-til.

Á sunnudag:
Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Skúrir SA-til, annars skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 0 til 5 stig.

Á mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir norðlæga eða breytilega átt. Snjókoma eða slydda með köflum N-lands, en úrkomulítið syðra. Hiti 0 til 7 stig að deginum, hlýjast syðst.

Fleiri fréttir