Hálka og skafrenningur á Þverárfjalli
Hálka eða hálkublettir eru á nokkrum leiðum á Norðvesturlandi en hálka og skafrenningur á Þverárfjalli. Snjóþekja er á Siglufjarðarvegi en þæfingsfærð á milli Ketiláss og Siglufjarðar. Norðaustan 10-18 og él á Ströndum og Norðurlandi vestra, einkum við ströndina. Lægir smám saman þegar líður á daginn, en áfram allhvasst á Ströndum.
Norðaustan 10-15 og dálítil él á annesjum á morgun, en hægari og yfirleitt þurrt í innsveitum. Hiti kringum frostmark.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á fimmtudag:
Norðaustanátt, víða 8-13 m/s en 13-18 um landið NV-vert. Él norðantil, skúrir eða él austanlands, en skýjað með köflum um landið suðvestanvert. Hiti 0 til 5 stig, en kringum frostmark fyrir norðan.
Á föstudag:
Norðaustanátt, 10-15 m/s, en 13-20 norðvestantil. Snjókoma eða él norðantil, slydda um landið austanvert, en yfirleitt þurrt suðvestantil. Hiti kringum frostmark, en hiti 0 til 5 stig sunnan- og austantil.
Á laugardag:
Norðaustan 8-15 m/s og dálítil él, en yfirleitt þurrt og bjart SV-lands. Heldur kólnandi.
Á sunnudag:
Austlæg átt, skýjað og víða dálítil él. Hiti um og undir frostmarki, en hiti 0 til 5 stig við suðurströndina.
Á mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir austan- eða suðaustan átt. Slydda eða rigning sunnantil á landinu, en annars úrkomulítið. Heldur hlýnandi veður.