Hálka, snjóþekja og skafrenningur á NLV

Á Norðvesturlandi er hálka, hálkublettir, snjóþekja, skafrenningur og éljagangur. Þungfært og stórhríð er á Öxnadalsheiði. Suðvestan 10-18 og él er á Ströndum og Norðurlandi vestra, en hægari og úrkomulítið verður í kvöld.

Suðlæg átt, 5-10 og snjómugga í nótt en norðaustan 8-13 og él á annesjum á morgun en úrkomulítið inn til landsins. Frost 0 til 5 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á föstudag:

Norðlæg átt 5-13 m/s á N-verðu landinu og dálitil él. Breytileg átt og slydda eða rigning S-lands fyrir hádegi, en úrkomulítið síðdegis. Hiti 0 til 5 stig syðst, annars víða 0 til 5 stiga frost.

Á laugardag:

Suðvestan- og vestan 10-18 m/s en hægari austlæg átt NA-til fram eftir degi. Rigning eða slydda og hlýnandi í bili, en snjókoma með köflum NA-til á landinu. Kólnar aftur V-til með vestanátt og éljum um kvöldið.

Á sunnudag:

Vestlæg átt 8-15 m/s, en norðlægari nyrst. Él S- og V-lands en snjókoma norðantil og kólnandi veður.

Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:

Norðaustlæg eða breytileg átt og él í flestum landshlutum. Frost 0 til 10 stig, mest inn til landsins.

Fleiri fréttir