Halldóra Björg í úrslit í Jólalagakeppni Rásar 2

Jólalagakeppni Rásar 2 stendur sem hæst og geta hlustendur valið sín uppáhaldslög. Tveir flytjendur frá Norðurlandi vestra eru í keppninni, hljómsveitin Ingimar og svo er 10 ára stúlka sem ættuð er frá Blönduósi og Hvammstanga Halldóra Björg Haraldsdóttir en hún hefur búið í Austurríki sl. sjö ár.

Halldóra er flutt til Íslands aftur með foreldrum sínum, þeim Hörpu Þorvaldsdóttur og Haraldi Ægi Guðmundssyni tónlistarmanni. Á Norðanátt segir að Halldóra Björg hafi fljótlega byrjað að semja eigin lög eftir að hún flutti til Íslands, fyrst saknaðaróð til vinkonu Halldóru Bjargar í Salzburg, næst kom lítið lag fyrir vefsíðuna Innihald.is og svo Það eru jól.

HÉR er hægt að nálgast lag Halldóru  Bjargar.

Fleiri fréttir