Handverkshátíð 2014

Nú fer hver að verða síðastur að sækja um á handverkshátíðina í Eyjafjarðarsveit. Hátíðin sem nú verður haldin í 22. sinn velur ríflega 100 sýnendur úr fjölda umsókna.

Þeir eru lærðir sem leikir af öllu landinu og selja fjölbreytt handverk og hönnun.
Stemningin á sýningarsvæðinu er einstök, það sanna þær 15-20 þúsund heimsóknir sem sýningin fær nú árlega.

Hátíðin fer fram dagana 7. – 10. ágúst og rennur umsóknarfresturinn út 1. apríl. Umsóknareyðublað og allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hátíðarinnar.

 Fréttatilkynning

 

Fleiri fréttir