Handverkssýning og kaffisala í Hnitbjörgum

Hin árlega handverkssýning og kaffisala félagsstarfs aldraðra verður haldin í Hnitbjörgum í dag, laugardaginn 30. maí, frá klukkan 14 til 17. „Ungir jafnt sem aldnir eru hvattir til að mæta og styðja við bakið á eldri kynslóðinni og skoða verk þeirra,“ segir í frétt á Húna.is.

Þar segir jafnframt að stórkostlega kaffihlaðborð félagsstarfsins verði á sýnum stað og eru allir hjartanlega velkomnir.

Enginn posi verður á staðnum.

Fleiri fréttir