Handverkssýning, vorsýning og opið hús
Sunnudaginn 26. maí nk. verður félagsstarf aldraðra með hina árlegu handverkssýningu og kaffihlaðborð í Hnitbjörgum frá klukkan 14 til 17. Sýndir verða munir sem unnir hafa verið í starfinu. Allir, ungir jafnt sem aldnir eru hvattir til að koma og styðja við bakið á eldri kynslóðinni og skoða verk þeirra. Einnig verður handverk til sölu þennan dag.
Vorsýning Blönduskóla
Þann sama dag verður haldin vorsýning á verkum nemenda í Blönduskóla. Sýningin fer fram í „Nýja“ skóla frá klukkan 13 til 15. Tískusýning hefst klukkan 13:30.
Barnabær – Opið hús
Opið hús verður í leikskólanum Barnabæ þennan sama dag frá klukkan 12 til 15. Þar verður hægt að skoða skólann og afrakstur þess starfs sem unnið hefur verið síðastliðna mánuði.
Blönduósbær.is segir frá þessu.