Hannes Bjarnason á Beinni línu DV.is

Skagfirski forsetaframbjóðandinn Hannes Bjarnason var á Beinni línu hjá DV.is í gær. Þar svaraði hann fjölmörgum spurningum frá lesendum vefsins en þar sagðist hann m.a. vona að hann eigi hljómgrunn hjá hinum almenna Íslendingi, þeim sem stunda sína verkamannavinnu.

Spurningarnar sem hann fékk voru afar fjölbreyttar; allt frá því hvaða fótboltaliðum hann heldur með, hver myndi leika hann í Hollywood-kvikmynd, hvort hann sé femínisti eða skoðun hans á frumvarpi að nýrri stjórnarskrá.

Hannes nefnir tvö atriði sem valda honum miklum áhyggjum, sem hann hefur orðið var við á ferð hans um landið, þ.e. aukin fjarlægð á milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins annarsvegar og svo siðferði hinsvegar.

Hvað varðar siðferðið tekur hann sem dæmi að maður sem rekur bensínstöð úti á landi er að tapa um 600.000 kr. á hverju sumri því fólk stingur af án þess að borga. Kona sem er að byggja er í vandræðum með að ráða fólk í vinnu á meðan það er nokkuð mikið atvinnuleysi. Einelti er úti um allt, ekki bara í skólum.

„Og ekki minnst allt það sem er að koma upp á yfirborðið um hvernig menn höguðu sér fyrir hrunið. Það þarf að efla siðferði á öllum stigum í þjóðfélaginu. Þar vil ég sýna góða fyrirmynd en það er ekki nóg. þetta er hlutur sem einn forseti getur bætt einn og sér. En umærðan verður að vera sýnileg,“ segir hann.

Hér má skoða þær spurningar sem bárust Hannesi, og svör hans við þeim, á Beinni línu DV.is.

Fleiri fréttir