Harðnandi frost næstu daga
Nokkur hálka er í Húnavatnssýslum en vegir að mestu auðir í Skagafirði en þó er hálka á Siglufjarðarvegi fyrir utan Hofsós. Á Ströndum og Norðurlandi vestra er norðaustlæg átt 8-15 m/s og úrkomulítið, en dálítil snjókoma í kvöld. Frost 0 til 8 stig.
Hægviðri á morgun, að mestu bjart og harðnandi frost.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á miðvikudag (Þorláksmessa):
Norðan 8-15 m/s, en vestlægari syðst. Víða dálítil snjókoma eða él. Frost 0 til 5 stig, en frostlaust við S-ströndina.
Á fimmtudag (aðfangadagur jóla):
Norðaustlæg átt 8-13 m/s og él, en að mestu þurrt á V-landi. Kólnar talsvert.
Á föstudag (jóladagur):
Norðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en él við NA-ströndina og einnig syðst á landinu. Talsvert eða mikið frost.
Á laugardag (annar í jólum):
Suðaustlæg átt og stöku él, en þurrt og bjart fyrir norðan. Frost 0 til 12 stig, kaldast N-lands.
Á sunnudag:
Útlit fyrir austlæga átt og úrkomu um allt land. Hlýnar í veðri.