Harma brottför Sifjar

Framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna harmar ákvörðun þingflokks Framsóknarflokksins um að draga Siv Friðleifsdóttur út úr forsætisnefnd Alþingis og segja hana hafa sýnt það með störfum sínum að hún sé starfinu vaxin. Ályktun þess efnis barst fjölmiðlum frá framkvæmdastjórninni.

 

 

Ályktun frá framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna hljóðar svo:

Framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna, LFK, harmar þá ákvörðun þingflokks Framsóknarflokksins að draga Siv Friðleifsdóttur út úr forsætisnefnd Alþingis. Siv er reynslumesti þingmaður Framsóknarflokksins sem nú situr á Alþingi. Hún hefur sýnt það með störfum sínum að hún er starfinu vaxin. Hefð er fyrir því að ekki sé hróflað við kjörnum forsetum á miðju kjörtímabili.

Fleiri fréttir