Harmar seinkun á ljósleiðarasambandi
Stjórn Húnanets ehf. harmar þá seinkun sem hefur orðið á ljósleiðaravæðingu í Húnavatnshreppi. Félagið sendi frá sér tilkynningu á vef Húnavatnshrepps og þar kemur fram að margir óviðráðanlegir þættir hafi valdið þessum töfum. Er vonast til að stór hluti þeirra heimila sem nú þegar eru komin með ljósleiðara inn í hús geti tengst ljósleiðarakerinu í kringum 15.-20. febrúar nk.
Í tilkynningunni kemur einnig fram að tengingar á stofnlögnum ljósleiðara sé lokið á leið 1, Svínvetningabraut, Svínadalur. Jafnframt sé stefnt að því að uppsetning húskassa verði lokið á næstu dögum á leið 1. Tengingar á stofnlögnum á ljósleiðara á leið 2. Niður-Ásar, Þing, Vatnsdalur, séu langt komnar og byrjað sé að setja upp húskassa á leið 2. Byrjað verði frá Blönduósi.
Einnig segir að stefnt sé að því að klára tengingar á þeim heimilum sem eru á leið 3, Langidalur að Húnaveri, sem þegar hafa fengið ljósleiðara inn í hús í beinu framhaldi af tenginu á leið 2. Tengill ehf. hafi með þær tengingar að gera.
Loks segir í tilkynningu Húnanets að tengingar og búnaður sem átti að vera klár, að sögn forstöðumanna Mílu, í símstöðinni á Blönduósi þann 3. desember síðastliðinn, hafi ekki verið settur upp og hafi Húnanet ekkert með þá seinkun að gera. Míla reikni með að þessi búnaður verði settur upp á tímabilinu 15. til 20. febrúar næstkomandi.