Hart barist á handboltamóti FNV
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla
24.01.2014
kl. 12.23
Nemendafélag FNV hélt handboltamót á þriðjudaginn og tókst mjög vel til með það, að sögn Halldórs Ingólfssonar skemmtanastjóra NFNV. Fjögur lið tóku þátt í mótinu en það voru hátt í tíu manns í hverju liði.
Nemendur úr dreifnámi á Blönduósi létu sig ekki muna um að skipa eitt lið og keyra yfir á Krók með bros á vör og stóðu sig eins og hetjur í mótinu að sögn Halldórs. Halldór segir mótið fyrst og fremst sett upp til skemmtunar til að auka á fjölbreytni í félagslífinu en engu að síður hafi verið hart barist fyrir titlinum. „Og sigurvegararnir voru nú ekki af verri kantinum, því að þar voru drengir af öllum stærðum og gerðum.“