Hátt hlutfall iðnmenntaðra karla á Norðurlandi vestra
Landshlutasamtök sveitarfélaga undirbúa nú gerð sóknaráætlana fyrir landshlutana og er unnið að greiningu á upphafsstöðu í landshlutunum í nokkrum mikilvægum samfélagsþáttum á Byggðastofnun. Á vef stofnunarinnar segir að einn þessara þátta sé menntun íbúa sem þykir gefa vísbendingu um forsendu fyrir nýsköpun og samkeppnishæfni svæðis. Kemur í ljós að hlutfall iðnmenntaðra karla er mun hærra en að landsmeðaltali.
Byggðastofnun fékk fyrirtækið Capacent til að taka saman úr gögnum sínum tölur um menntun fólks eftir landshlutum og kemur þar fram að í samanburði við landsmeðaltal er mun lægra hlutfall sem lokið hafa háskólanámi á Norðurland vestra. Þó munar ekki ýkja miklu þegar horft er á grunnnám í háskóla meðal kvenna. Á hinn bóginn er mun hærra hlutfall iðnmenntaðra karla en að landsmeðaltali. Á móti kemur að hlutfall karla með stúdentspróf eru nokkuð lægra en á landsvísu. Þá er hlutfall þeirra sem aðeins hafa lokið grunnskólaprófi eða minna mun hærra en landsmeðaltal.