Haustdagur ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra

Frá Skagaströnd. Mynd: Skagaströnd.is
Frá Skagaströnd. Mynd: Skagaströnd.is

Haustdagur ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra verður haldinn í Fellsborg á Skagaströnd mánudaginn 13. nóvember klukkan 13:00 til 16:00. Erindi flytja þau Ársæll Harðarson, forstöðumaður hjá Icelandair, Smári Ríkharðsson, framkvæmdastjóri Tryggja ehf., Guðrún Hildur Ragnarsdóttir, svæðisstjóri Expedia í Vestnorden og Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.

Dagskrá:

  • Opnun
  • Þróun og tækifæri ferðaþjónustunnar á Asíumarkaði.
    Ársæll Harðarson, forstöðumaður hjá Icelandair og formaður stjórnar Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins
  • Tryggingar í  ferðaþjónustu.
    Smári Ríkharðsson, framkvæmdastjóri Tryggja ehf. tryggingamiðlun.
  • Hvaða þátt á Expedia í fjölgun bandarískra ferðamanna á landsbyggðinni?
    Guðrún Hildur Ragnarsdóttir, svæðisstjóri Expedia í Vestnorden löndunum (IS,GL,FO).
  • Hvað er í deiglunni hjá Markaðsstofunni?
    Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.

Spurningar verða leyfðar úr sal að  loknu herju erindi.

  •  Kaffihlé
  • „Opinn hljóðnemi“ -
    Hvað liggur fólki í ferðaþjónustunni á Norðurlandi vestra á hjarta? Uppbyggilegar hugmyndir, athugasemdir, spurningar og reynslusögur uns hljóðneminn verður glóandi… 

Að lokinni dagskrá gefst gestum tækifæri á að nýta ferðina og heimsækja og skoða nýja Vörusmiðju Biopol og glænýtt gistiheimili í Salthúsinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir