Haustfundir LK á Norðurlandi vestra

Landssamband kúabænda hefur farið vítt og breitt um landið og fundað með bændum þar sem m.a. hefur verið kynnt stefnumörkun Landssambands kúabænda til 2021. Stefnumörkunin lýsir framtíðarsýn búgreinarinnar til næstu 10 ára, auk þess sem hún útlistar með hvaða hætti LK hyggst starfa á næstu árum til hagsbóta fyrir íslenska nautgriparækt.

 

Auk stefnumörkunarinnar er fjallað um framleiðslu-, sölu- og afkomumál, framkvæmd mjólkursamnings, staða lánamála bænda, greiðslumark mjólkur og kvótamarkaður, breytingar á laga- og regluumhverfi greinarinnar og staða umsóknar Íslands að ESB.

Kúabændur á Norðurlandi vestra fá sína fundi en á morgun fimmtudaginn 20. október verður einn slíkur haldinn á Mælifell Sauðárkróki kl. 12 og annar sama dag í Ósbæ á Blönduósi kl. 20.30.

Mánudaginn 24. október  verður haldinn fundur í Ásbyrgi V-Hún. og hefst hann klukkan kl. 12:00.

Fleiri fréttir