Hefur aldrei átt né selt kvóta
Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður VG í Norðvesturkjördæmi hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla utanríkisráðherra um að hún hafi ekki gert grein fyrir hagsmunum sínum um kvótasölu sína og fjölskyldunnar. Í yfirlýsingunni segir Lilja Rafney að hvorki hún né eiginmaður hennar hafi átt eða selt kvóta.
Yfirlýsing Lilju Rafneyjar Magnúsardóttir alþingismanns:
„Vegna orða Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra í morgunútvarpi RÚV um að undirrituð hefði ekki gert grein fyrir hagsmunum sínum um kvótasölu sína og fjölskyldunnar þegar hún barðist fyrir breytingum á fiskveiðistjórnarkerfinu á síðasta kjörtímabili vil ég að eftirfarandi komi fram:
Lilja Rafney og eiginmaður henna hafa aldrei átt eða selt fiskveiðikvóta. Fósturfaðir hennar var hættur smábátaútgerð sökum aldurs þegar hún tók sæti á Alþingi 2009 og faðir hennar, sem var sjómaður og átti smábát, lést árið 1997. Engir beinir eða óbeinir einkahagsmunir lágu því undir þegar Lilja Rafney barðist fyrir breytingum á kvótakerfinu, aðeins hagsmunir almennings. Með orðum sínum um annað leitast utanríkisráðherra við að afvegaleiða umræðuna um hagsmuni forsætisráðherra og eiginkonu hans og heldur fram helberum ósannindum um undirritaðan þingmann í því skyni að gjaldfella málflutning hans á þingi og í þjóðfélagsumræðunni og drepa á dreif gagnrýni á forsætisráðherra.“