„Hefur alltaf blundað í okkur að setjast að í sveit“

Einar Kristján Jónsson, sveitarstjóri Húnavatnshrepps, Sveinbjörg Valdís Lúðvíksdóttir, Snorri Davíðsson og Davíð Jónsson. Mynd: KSE
Einar Kristján Jónsson, sveitarstjóri Húnavatnshrepps, Sveinbjörg Valdís Lúðvíksdóttir, Snorri Davíðsson og Davíð Jónsson. Mynd: KSE

Hjónin Sveinbjörg Valdís Lúðvíksdóttir og Davíð Jónsson taka við rekstri Húnavers þann 1. desember næstkomandi. Þá verður sonur þeirra, Snorri Davíðsson, þeim til aðstoðar fyrstu mánuðina.

Þau hjónin hafa komið víða við á starfsævinni en Sveinbjörg segir það lengi hafa blundað í þeim að setjast að úti á landi. Þau taka við rekstrinum 1. desember. „Við höfum mikinn áhuga á Beint frá býli og ætlum að ræða við bændur hérna í nágrenninu hvað þeir eru að gera og geta boðið upp á og viljum endilega hafa samstarf um það,“ segir Sveinbjörg meðal annars í viðtali sem birtist í nýjasta tölublaði Feykis í dag.

Fleiri fréttir