Heilsuátak kvenna á Skagaströnd

Kynningarfundur var haldinn fyrir helgi um heilsuátak fyrir konur á Skagaströnd og tókst afskaplega vel. Um 40 konur mættu eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, og eru allar áhugasamar um framhaldið.

Stefnt er að því að koma á fjölbreyttri, og skemmtilegri, tíu vikna dagskrá með það að markmiði að byggja upp bæði líkama og sál. Boðið verður upp á alhliða hreyfingu, svo sem jóga, pilates, þolfimi og dans. Einnig verður rætt um aðhald í mat fyrir þær sem vilja og svo er ætlunin að bjóða upp á fyrirlestra, matarkvöld og skemmtikvöld.

Mikil og góð stemning myndaðist á fundinum og er stefnt að því að byrja þriðjudaginn 8. febrúar.

Fleiri fréttir