Heilsuefling 60 ára og eldri á Skagaströnd - FRESTAÐ!

Fundinum sem vera átti í dag er FRESTAÐ vegna veðurs!

Sveitarfélagið Skagaströnd býður íbúum, 60 ára og eldri, til fundar í Félagsheimilinu Fellsborg, í dag, miðvikudaginn 11. mars, klukkan 17:30.

Í fundarboði segir að á Skagaströnd sé aðstaða til hreyfingar og líkamsræktar góð og eru margir íbúar sem nýta sér hana nú þegar. Sveitarstjórn langar til þess að koma enn betur til móts við bæjarbúa og heyra álit og áhuga þessa aldurshóps á frekari heilsueflingu. Á fundinum mun Ásdís Adda Ólafsdóttir , sjúkraþjálfari, halda erindi um ávinning hreyfingar og mikilvægi hennar.

Dagskrá fundarins er á þessa leið:

1. Ávinningur hreyfingar.
2. Möguleikar til nýtingar á þreksal íþróttahúss, sundlaugar og íþróttasals.
3. Hugmyndir og óskir bæjarbúa.

 
 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir