Heimasætubiti – Nýr ostur úr brjóstamjólk kynntur í dag

Mjólkursamlag KS á Sauðárkróki mun kynna Heimasætubita nýjan ost úr brjóstamjólk í Skagfirðingabúð í dag. Osturinn sem er mjög próteinríkur en jafnframt hitaeiningasnauður þykir henta sérstaklega vel fyrir fólk sem hugar að heilsu sinni.

Að sögn Friðriks Hreinssonar, einkaþjálfara á Sauðárkróki, er osturinn einstaklega næringarríkur og stútfullur af andoxunarefnum. „Neysla á þessum osti ætti í raun að geta komið algjörlega í stað fæðubótaefna og fyrir þá sem vilja ganga alla leið þá er fátt hollara en drykkja á brjóstamjólk,“ segir Friðrik.

Svavar Sigurðsson, ostameistari hjá KS, hefur verið að þróa ostinn um nokkurra mánaða skeið en þar sem brjóstamjólkin er dýr voru tilraunir unnar með kaplamjólk sem þykir hvað líkust brjóstamjólk. „Við erum loksins tilbúnir með ostinn í sölu en osturinn er mótaður í líki kvenmannsbrjósts. Þú ert það sem þú borðar og því liggur í augum uppi að brjóstamjólk er manninum mun hollari en kúamjólkin,“ segir Svavar.

Nú þegar hafa nokkrar mjólkandi mæður gert samning við mjólkursamlagði en sérstakt herbergi hefur verið útbúið þar sem þær geta komið og farið í þar til gerða mjaltavél. „Við erum að borga fjórfalt miðað við venjulega kúamjólk en þær sem eru með svokallaða ofurmjólk fá greitt sexfalt. Eins viljum við benda á að allar konur sem einhvern tíma hafa gefið brjóst geta látið mylkja sig upp en það að gefa brjóst þykir grennandi auk þess sem allir vita að brjóst kvenna eru aldrei stærri né fegurri en þegar þær gefa brjóst. Þarna fá þær því smá auka aur auk þess að fá brjóstastækkun fyrir ekki neitt. Nú síðan ef salan verður góð verður hægt að útvíkka þetta og þá förum við hugsanlega að sækja mjólk frá konum í nágrannasveitarfélögum. Afurðahæstu konurnar fá síðan vélar með sér heim og gætu því með tíð og tíma haft brjóstamjólkurgjöf sem sína aðal atvinnu.“

Kynning á ostinum fer fram klukkan 16:00 en sala á ostinum hefst á sama tíma.

Fleiri fréttir