Heimilað að stugga við sel með skotvopni

Vigni Björnssyni hefur verið veitt heimild til að stugga við sel með skotvopni, fyrir hönd Veiðifélag Blöndu og Svartár, í ósum Blönduósbæjar en leyfið var veitt af bæjaryfirvöldum á síðasta fundi Bæjarstjórnar, sem haldinn var 24. maí sl. 

„Bæjarráð leggur áherslu á að það valdi bæjarbúum og ferðamönnum ekki ónæði,“ segir í bókun í fundargerð.

Samkvæmt heimildum Húna.is er algengt að selir gangi upp í Blöndu „á eftir feitum og gómsætum löxum“, eins og það er orðað, á hverju sumri. „Í sumum tilfellum hafa selir gengið upp á Breiðina og í Damminn, sem eru fengsælustu veiðistaðirnir í Blöndu.“

 

Fleiri fréttir