Heimildarmynd um leikskólann Barnaból
Undanfarnar vikur hefur verið unnið að gerð myndbands um Leikskólann Barnaból á Skagaströnd í tilefni 35 ára afmælis hans. Verkefnið er unnið í samstarfi leikskólans og Nes listamiðstöðvar en Minningarsjóður hjónanna frá Garði og Vindhæli styrkir verkefnið.
Á vef Skagastrandar segir að Nes listamiðstöð hafi auglýst eftir listamanni til að koma til Skagastrandar og búa til heimildamyndina og valdi AnneMarie van Splunter frá Hollandi, úr hópi 30 umsækjenda frá 18 löndum. Nemendur í myndbandagerð í grunnskólanum og tónlistarmenn á staðnum taka einnig þátt í verkefninu. Connie Dekker, sem er hollenskur listamaður, mun sjá um ljósmyndaþáttinn í verkefninu.
Þegar myndin er tilbúin verður forsýning haldin á Skagaströnd en einnig mun myndin verða á heimasíðu Nes listamiðstöðvar og listamannanna sjálfra.
AnneMarie vill gjarnan að allir núverandi og fyrrverandi nemendur og starfsfólk Barnabóls verði þátttakendur í þessu verkefni og eru þeir sem einhvern tímann hafa dvalið á leikskólanum beðnir um að hafa samband við AnneMarie; á netfanginu: annemarievansplunter@orange.nl, í farsímann hennar: 0031613018821 eða bara líta við í Nes listamiðstöð.