Heimsklassa þorrablót Vökukvenna á morgun
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
23.01.2015
kl. 15.49
Hið árlega þorrablót Kvenfélagsins Vöku verður haldið á morgun, laugardaginn 24. janúar, í Félagsheimilinu á Blönduósi. Veislustjórn verður í höndum Þorgerðar Þóru Hlynsdóttur (Giggu). K.K. og Co. sjá um skemmtiatriði og Trukkarnir sjá um undirleik í fjöldasöng og leika fyrir dansi fram á rauða nótt. „Nú gildir að vera þjóðlegur og skella sér á heimsklassa þorrablót Vökukvenna,“ segir á Húna.is.
Miðasala verður í Félagsheimilinu í dag frá kl. 17 - 19. Miðaverð er 6.500 krónur og er enginn posi á staðnum. Elli- og örorkulífeyrisþegar ásamt unglingum fæddum árið 1999 greiða 5.500 krónur.
Húsið opnar kl. 19:30 og hefst borðhald stundvíslega klukkan 20:30.